Employee trips

/

Tvennupakki

/

Reykjavík og Hvalfjörður

/

Fjórhjólaferð

Fjórhjólaferð

Tvennupakki

Reykjavík og Hvalfjörður

Group size

10-50 manns

Price from

21.800 kr

About the trip


Fjórhjólaferð + Hvammsvík


Fullkomin blanda af fjöri og slökun


Dagurinn byrjar á spennandi fjórhjólaferð þar sem hópurinn fær að upplifa íslenska náttúru á skemmtilegan hátt! Ekið er um fjölbreytt landslag með frábæru útsýni yfir Reykjavík og nágrenni. Fjórhjólaferðin er tilvalin leið til að hrista hópinn saman og koma deginum af stað með krafti.


Hægt er að velja um mismunandi lengdir af fjórhjólaferðum eftir því hvað hentar hópnum best. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og allur nauðsynlegur búnaður er innifalinn, svo þið þurfið bara að mæta tilbúin í ævintýrið!


 Næsta stopp er  Hvammsvík!


Eftir fjórhjólaævintýrið tekur við einstök upplifun í Hvammsvík  þar sem hópurinn getur notið náttúrunnar og slakað á í heitum laugum við sjávarsíðuna.


Í Hvammsvík eru átta náttúrulegar heitar laugar með mismunandi hitastigi og stórkostlegu útsýni yfir Hvalfjörð. Þar getur hópurinn notið þess að fara á milli lauganna, kælt sig niður með dýfu í sjóinn eða einfaldlega notið samverunnar í fallegu umhverfi.


Hægt er að sníða upplifunina að ykkar hópi! Nokkrar tegundir af pökkum eru í boði í Hvammsvík og einnig er hægt að bæta við mat og drykkjum og gera enn meira úr deginum.


Þessi samsetning er tilvalin fyrir starfsmannahópa sem vilja sameina útivist, ævintýri og slökun í einni skemmtilegri dagskrá.


Vantar ykkur rútu eða akstur á milli staða?  Ekkert mál! Við getum séð um að skipuleggja rútu eða annan akstur fyrir hópinn og bæta því við pakkann gegn aukagjaldi.


Tvær ólíkar upplifanir, einn ógleymanlegur dagur saman!


 

Inquiry about this service

Inquiry about this service

Submit an inquiry and we will contact you with confirmation, pricing, and more information.

No payment is being made at this time — we will contact you to confirm your booking.